11.1.2007 | 10:53
Rope yoga
Eftir að maður eignast börn má segja að líkaminn sé ekki alveg að gera sig. Maður þarf að byggja upp og styrkja. Ekki veitir af.
Því datt mér í hug að fara í rope yoga, en námskeið í svoleiðis sá ég auglýst hér í "sveitinni". Í gær var svo fyrsti tíminn..
Hann byrjaði hálf furðulega, þegar ég geysist inn úr dyrunum - sem skella hátt á eftir mér - dett ég inn í sal fullum af kellingum sem voru í slökunarjóga!
Ég SNAR stoppaði í dyrunum og laumaðist til að fá mér sæti. Eftir það kemur kennarinn og EIN kona. Við vorum sem sagt tvær í tímanum!
Kennarinn dregur fram bekkina og þessi blessuðu bönd sem allt snýst um. Svo segir hann okkur að leggjast og byrja. Ekki fékk ég miklar leiðbeiningar svo
ég bara lagðist á bakið og beið þess sem verða vildi
Böndin voru þrædd á ökkla og svo handföng fyrir hendurnar.
Og svo byrjuðum við. Þetta byrjaði voða vel. Draga böndin með höndunum og fæturnir fóru upp og niður, upp og niður. Svo kom að því að draga fæturna í jógastellingu... o.s.frv. Svo kom að því að leggjast á hliðarnar, þá áttu fæturnir að koma á ákveðinn hátt í gegnum böndin... hmmmmm það tók mig nokkrar tilraunir að fatta það! Svo átti að taka handföngin líka á ákveðinn hátt í þríhyrning í gegn einhvern veginn... Ég var orðin ægilega ljóshærð! Kennaranum fannst að einhver
þyrfti að fylla ljósku flokkinn því ljóskum færi fækkandi!!
Æfingarnar voru spes (enda hef ég aldrei gert þetta áður) en ekki erfiðar. Ég sá best í hvernig formi ég var þegar ein æfingin sneri að því að taka fæturna upp og lyfta svo rassinum, ég gat alveg tekið fæturna upp en að lyfta rassinum -
gleymið því.
Öndun skiptir miklu máli (enda er þetta jóga) en ég kunni hana ekki betur en svo að þegar tíminn var búinn var ég bæði með hálfgerðan svima og óglatt. Ætla því að mæta aðeins fyrr á morgun og fá leiðbeiningar svo ég andist hreinlega ekki í tímanum!
Annars finn ég alveg fyrir því núna að ég var að gera eitthvað nýtt, er svona lurkum lamin. En engar harðsperrur. Hef ekki trú á neinu öðru en að þær komi þegar fram líða stundir!
kv. húsmóðirin
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.