Góður dagur

Þetta var góður dagur í dag, rólegur og fínn.

Ég fór í langan göngutúr með góðum vinkonum úr meðgöngusundinu. Í 2 klukkutíma ösluðum við snjó hér í Reykjadalnum, enduðum svo að okkar hætti í sjoppuWhistling.... alger óþarfi að brenna of miklu!

Eins og þeir vita sem þekkja mig þá eignaðist ég mitt þriðja barn í október síðastliðnum. Á meðgöngunni fór ég að finna fyrir grindarverkjum og ákvað að fara í meðgöngusund. Fyrst um sinn í sundinu var þetta frekar einmanalegt, ég var snögg ofan í og upp úr aftur!  Síðar komst ég að því að aðal félagslíf óléttanna var að fara í heita pottinn. Þar kynntist ég nokkrum stelpum sem áttu að eiga um svipað leyti og ég.  Þegar upp var staðið urðum við 8 sem héldum hópinn. Þessi tími á þriðjudags og fimmtudagskvöldum varð okkar tími. Við löbbuðum út frá börnum og buru, þreyttum eiginmönnum, uppvaski og tiltekt og settumst í heita pottinn í Reykjalundar sundlauginni. Það er ekki hægt að segja annað að það hafi alltaf verið gaman hjá okkur. Okkur þótti öllum gaman að tala og hlógum mikið. Það má segja að fyrirferðin hafi verið mikilGrin.  Ekki veit ég hvort öllum kennurunum hafi þótt við eins skemmtilegar, því eina leiðin til að fá okkur til að þegja var að láta okkur gera æfingar sem kröfðust einbeitningar eða þar sem hendur og fætur áttu að hreyfast á sama tímaTounge.

Þegar að fæðingum dró fórum við að hittast utan sundsins. Fyrst var það á 2 vikna fresti en nú þegar liðið hefur á haustið hefur það aukist í einu sinni í viku. Það er óhætt að segja að stelpurnar hafa haldið í manni lífinu og geðheilsunni þessa mánuði. Því þótt það sé yndislegt að eignast barn er það líka rosalega erfitt. Bæði fyrir konuna, manninn og heimilið.  

Við höfum stappað stálinu hver í aðra og þegar einhver hefur verið latur eða niðri þá hafa engin grið verið gefin og ekki hætt fyrr en manneskjan er mætt í hópinn aftur. 

Þegar maður dettur inn í svona hóp sér maður hvað svona félagsskapur skiptir miklu máli fyrir nýbakaðar mæður. Þarna er einhver sem er að ganga í gegnum það sama og þú, svo það er alltaf einhver sem skilur þig, þú getur fengið ráð og tuðað undan "erfiðum" mökum... það eru allir tilbúnir að hlusta.

Svona hópar ættu að vera skylda - því ég tel ansi miklar líkur á því að þá myndi lækka tíðni fæðingarþunglyndis. 

A.m.k. tel ég að stelpurnar hafi bjargað ansi miklu hjá mér og veit að þær eru líka sama sinnis gagnvart okkur hinum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband