15.1.2007 | 17:52
Byrgið
Það er ekki hægt að segja annað en að fréttaþættinum Kompási hafi tekist að hrista ærlega upp í starfsemi og málefnum Byrgisins. Ég get alveg viðurkennt að ég setti mikið og stórt spurningamerki við þáttinn á sínum tíma því þar voru, að mínu mati, settar fram alvarlegar ásakanir á hendur nafngreindum manni. Æran var af honum tekin og ósköp fáar sannanir lagðar fram í þættinum.
Ég þekkti persónulega mann sem tók líf sitt eftir mjög alvarlegar ásakanir á forsínu DV. En þar var hann nafngreindur og myndbirt af honum. Því tek ég alla svona fréttamennsku með mikilli varúð. OG fannst fyrst um sinn núna í þessu Byrgis máli sem einhverjar nornaveiðar væru á ferðinni.
Hins vegar virðist sem Kompás hafi eingöngu talað um toppinn á ísjakanum því það sem kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar er margt merkilegt. Þá er eingöngu verið að tala um fjármálin - allt annað sem þar hefur gengið á er eðlilega ekki innan ramma Ríkisendurskoðunar heldur Félagsmálaráðuneytisins. Sem skv. nýjustu fréttum hefur óskað eftir lögreglurannsókn.
Ég las þessa skýrslu og sá margt merkilegt. Það fyrsta sem ég rak augun í var að Byrgið undirritaði ekki yfirlýsingu sem Félagsmálaráðherra þáverandi undirritaði í október árið 2003. En í yfirlýsingunni var sagt að Byrgið fengi greitt, eftir ákveðnum skilyrðum, fyrir skjól og aðstoð 55 heimilismanna. Byrgið gaf þá skýringu að þeir töldu ríkisframlagið og stærð húsnæðis ekki bjóða upp á svo marga vistmenn. Samt fékk Byrgið borgað í samræmi við yfirlýsinguna. Svo virðist sem enginn hafi haft það verk fyrir höndum að athuga hvort fjöldi heimilismanna væri í samræmi við lýsinguna. Hefði þá ekki verið við hæfi að endurskoða yfirlýsinguna?
Annað sem mér fannst eiginlega alveg óborganlegt. Var að af 3.5 milljónum króna fóru 15% til kaupa veitinga á KFC og 4% til kaupa á öðrum veitingastöðum en KFC. Var það þannig að farið var ein ferð í mánuði með alla heimilismenn á KFC? Hópferð Byrgisins á skyndibitastaði... Veit að þetta er sett fram í kaldhæðni, en í raun er það réttlætanlegt þegar um er að ræða á fjórða hundrað þúsund króna í ruslfæði.
Tóbak var keypt af Byrginu fyrir vistmenn og fengu þeir það oftast gegn greiðslu. En Byrgismenn sögðu að stór hluti heimilismanna væru stórreykingamenn.....hmmmm segi ég nú bara. Spurning um að fá einhvern til að koma og halda námskeið þar sem heimilismenn hættu að reykja.
En svo er eitt annað sem mér finnst að ætti að vera á hreinu. Eiga þeir sem þessu komu á koppinn, t.d. þáverandi félagsmálaráðherra ekki að svara fyrir það hvernig Byrgið hefur fengið að leika sér með peninga skattborgaranna.... eða á að breiða yfir þessa "yfirsjón" því Byrgið losaði bæði ríki og sveitarfélög við óæskilega þegna?
Ég hef nú bara nefnt þrennt sem hefur komið mér spánskt fyrir sjónir. Það var ýmislegt fleira sem mér fannst athyglisvert en læt það liggja á milli hluta því ég hef ekki mikla þekkingu á bókhaldi.....
Því til sönnunar aðstoðaði ég móður mína á hennar skrifstofu sl. vor og vissi þá varla muninn á debet og kredit.
Athugasemdir
Já maður ætti kannski að renna yfir þessa skýrslu. Mér heyrðist svona á því sem ég greip í fréttunum að bókhaldið hefði verið meira og minna í rúst og enginn með bókhaldsþekkingu hefði komið þarna nálægt. Sjálfsagt enginn viljað það...
En þetta er stór dómur yfir ríkinu, sýnir að enginn hefur hugmynd um í hvað skattpeningarnir fara í raun og veru...
Erla Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 15.1.2007 kl. 22:07
Já já það er eins og ég hafi bókað það reikningana sjálf
.....
husmodirin (IP-tala skráð) 16.1.2007 kl. 09:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.