Hádegisviðtalið

Ég horfði í gær á hádegisviðtalið á Stöð 2. Þar sat Margrét Sverrisdóttir fyrir svörum vegna yfirlýsingar um framboð sitt til varaformanns Frjálslynda flokksins. 

Hún var spurð hvað hún hefði fram að færa sem Magnús Þór hefði ekki. Hún nefndi sérstaklega að hún væri aðal hugmyndasmiður að auglýsingum Frjálslynda flokksins. Þær væru ódýrar og smekklegar! Er þetta það sem manneskjan hefur fram að færa, ég verð að viðurkenna að ég horfði á sjónvarpið og velti fyrir mér hvort hún væri að grínast. Á varaformaður flokks ekki að hafa meira til brunns að bera en að geta skapað ódýrar sjónvarpsauglýsingar??  

Annað sem hún sagði fékk mig til að glotta út í annað. Hún sagði þetta framboð sitt sáttahönd til að skapa frið í flokknum. Hvernig í ósköpunum fær hún það út að friður geti skapast þegar tveir aðilar sækjast eftir sama sætinu? Þá kemur bara sterkar í ljós hvaða armur er Adda Kitta Gauj og hvaða armur er hennar. Er það friður?

Svo klikkti hún út með því að það skemmdi ekki fyrir að hún væri kona. Því augljóslega er Magnús Þór það ekkiTounge

Mér hefur fundist þessi kona standa sig oft á tíðum vel í þessu arga þrasi stjórnmálanna, vera málefnaleg. En ég vissi ekki alveg hvað ég átti að halda í gær.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband