19.1.2007 | 17:54
Sleggjudóttirin
Þeir sem mig þekkja vita hverra manna ég er. Þeir sem þekkja mig ekki komast að því núna. Ég er sem sagt dóttir Sleggjunnar víðfrægu.
Sem barn var ég oft spurð út í þetta Sleggju viðurnefni. Og hefur það ekki minnkað!
Í dag datt ég inn á blogg eins Bolvíkings sem veltir fyrir sér málefnum Sleggjunnar. Það var þar ein setning sem snart mig - svo ég viðurkenni það. Hann sagði að sig grunaði að stríð sem pabbi hefur háð (í pólitíkinni sem sagt) hefðu verið erfið þeim sem nærri honum standa.
Þetta er í fyrsta sinn sem einhver nefnir þetta upphátt svo ég "heyri". Mér hefur einmitt fundist frekar að fólk haldi að af því að maður er fullorðinn að þá skipti þetta mann engu máli. En þessi einstaklingur hitti vissulega naglann á höfuðið. Undanfarin ár hafa ekki alltaf verið auðveld, þó maður sé fullorðinn. Það sem sagt hefur verið um hann, hvort sem er í fréttum eða á netinu (í skjóli nafnleyndar), hefur oft verið erfitt að kyngja.
Fólk hefur yfirleitt bara þagað og látið sem ekkert sé. Sem er oft sárt, því stundum þarf maður að fá klapp á bakið eða bara spyrja mann hvernig manni gangi að heyra það sem sagt er.
Takk Baldur
Athugasemdir
Sæl Dagný
Gott að sjá að þú sért farin að blogga aftur, til hamingju með það!!!
Kv.Ella
Elín Ragnarsdóttir (IP-tala skráð) 19.1.2007 kl. 18:05
Gaman að lesa! Sjáumst á morgun!¨
kv, Guðlaug
Guðlaug (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 19:39
Ég vænti þess eindregið að hér sé ekki illa vegið að pabba þínum: Hvað gerir Kristinn H. Gunnarsson?
Bestu kveðjur.
Hlynur Þór Magnússon, 25.1.2007 kl. 11:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.