Kúkur í Kastljósinu!

Það var merkilegt að fylgjast með Kastljósinu í gærkvöldi. Þar "áttust" við Jónína Ben og Árni Valdimarsson (minnir mig) sem er meltingarsérfræðingur.

Að ræða um ristil,endaþarm og hægðir í korter í einum vinsælasta þætti landsins er alveg frábært. Eins og Simmi sagði að við ættum að þekkja vel innviði líkamans eftir þáttinnGrin

Jónína dásamaði mikið ristilhreinsun, stólpípu t.d. Hvað þetta hefði góð áhrif á líkamann o.s.frv. Á meðan læknirinn hristi hausinn yfir þessu. Nefndi m.a. að hann hefði unnið á heisluhælinu í Hveragerði og þar hefði þessu verið hætt fyrir 20-30 árum, því árangurinn var eitthvað óljós.  

Ef þið misstuð af þessu þá er þetta inni á ruv.is

Mér finnst merkilegt hvað Jónína rís alltaf upp aftur. Nú hefur farið frekar lítið fyrir henni undanfarin 2 ár og svo kemur hún fram með eitthvað nýtt sem Íslendingar verða að prófa, einhverjar heilsuferðir til Póllands. Þetta minnir á þegar hún kom fram í glansgalla með hárið í tagli og var að kynna líkamsrækt fyrir fólki! Ég nenni ekki einu sinni að eyða púðri í þetta Baugsmál sem er henni svo hugleikið. 

Alla veganna er það á hreinu að ég hreinsa ekki ristilinn í mér með stólpípu eða laxerandi, og fer ekki til Póllands - nema til að fara í búðir og skoða mig umWhistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég verð að kíkja á þetta!!!!   Sjáumst í kvöld!!!

kv, Guðlaug

Guðlaug (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 15:35

2 identicon

Innilega sammála þér með hana Jónínu, hún er soldið eins og kvef, kemur alltaf reglulega og er fjandi lífseig en hvimleið hahahahhahahha.

Sigrún (IP-tala skráð) 26.1.2007 kl. 09:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband