Gærkvöldið

Gærkvöldið var æðislegt!

Ég fór ein út og Haukur var heima og kom liðinu niður. Þetta er í annað sinn síðan Tómas fæddist sem ég svæfi hann ekki. Erla fórnaði sér hitt kvöldið!

Ég fór út að hitta stelpurnar úr Mjallhvít og dvergunum. Þ.e. stelpurnar sem voru með mér í meðgöngusundi.  Okkur finnst ægilega gaman að hittast. Við tölum hátt og mikið, hlæjum enn meira. Ég er hins vegar ekki viss um að öðrum gestum veitingastaða finnist við eins skemmtilegarWink. Þetta var í annað skiptið sem við hittumst svona en þá vorum við fyrr á ferðinni. Og vorum komnar heim til að koma börnunum niður. Þegar við hittumst í þetta fyrra skipti vorum við eins og beljurnar á vorin. Og ekki vorum við síðri í gærkvöldi.  Sem betur fer fengum við borð frekar afskekkt á veitingastaðumTounge

Svo stendur til að hittast seinnipartinn í febrúar með mökum. Það verður vafalítið fróðleg samkoma og verð ég að viðurkenna að ég hálf vorkenni karlagreyjunum - svona fyrsta kvöldið. Því við erum svakalegar saman og þeir gætu orðið eins og illagerðir hlutir. A.m.k. þangað til að prósentan fer að flæða um æðarnarCool.

Á mánudaginn koma stelpurnar til okkar Tómasar og verður það ægilega gaman. Ég ætla að skoða Eftirréttabók Hagkaups sem Kertasníkir gaf mér í skóinn, og finna eitthvað ægilega gott fyrir okkur. Við erum nefnilegast farnar að sitja fram eftir öllum degi og þá þarf að hafa eitthvað gott að borða.

Ég er farin í húsmóðurstörfin - því það er að koma helgi. Þær hafa ekki alltaf verið auðveldar á þessum bæ, því ætla ég að reyna að gera sem mest svo hægt sé að leyfa börnunum að eiga helgina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

mmm......  mér líst vel á þessa hugmynd, eftirréttabók...mmmmm

Takk fyrir seinast,   kv, Guðlaug

Guðlaug (IP-tala skráð) 26.1.2007 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband