13.2.2007 | 18:35
Kennari
Fyrir nokkrum árum fór ég þennan hring sem ungt fólk fer oft. Að ákveða hvað ég ætla að vera þegar ég verð stór. Fyrst var það hjúkka, svo var það félagsráðgjafi. Á endanum ákvað ég að sækja um í KHÍ. Umsóknin var send inn á síðasta degi (í orðsins fyllstu). Enginn var látinn vita hvað var í gangi (nema Haukur auðvitað). Þegar ég svo komst inn í skólann má segja að ég hafi staðið á öndinni af undrun. Ég hafði hreinlega ekki meiri trú á því að mér tækist að rata þarna inn. Enda voru 1000 manns að sækja um 300 pláss.
Síðastliðið vor var svo komið að útskrift. Við mættum 600 manns í Laugardalshöllina og tókum við okkar prófskírteinum.
Ekki fyrir svo alls löngu fór ég að skoða kjarasamninga þá sem í gildi eru í kennarastéttinni. Ég verð að viðurkenna að mér féllust eiginlega hendur. Eftir 3 ára háskólanám er ég svona sirka í launaþrepi sem nemur rúmum 200 þúsund krónum á mánuði í heildarlaun. Ég hef velt því fyrir mér til hvers ég var að þessu, að leggja á fjölskylduna mörg kvöld innilokuð í herbergi, að eyða öllum desember og maí í að læra fyrir próf o.s.frv.
Ástæðan fyrir því að ég lagði þetta á mig og mína er sú að þetta er starf sem mig langar til að vinna við. Miðað við launin þarf ég að setja í forgang þann hugsunarhátt að ég sé í þessu af hugsjón.
Undanfarna daga hafa kennarar í Reykjavík mótmælt launum sínum og farið fram á leiðréttingu. Það sem er leiðinlegt að sjá er hvernig fólk bregst við þessum fréttum. Frekja og yfirgangur í kennurum er oft nefnt.
Hvað halda foreldrar og aðrir aðilar í landinu að kennarar séu að gera á daginn?? Annað en að hugsa um börnin og jafnvel reyna að ala þau upp. Því inn í námskrá grunnskóla er komin lífsleikni sem snýst oft um kennslu í mannasiðum og almennri kurteisi, hvað má og hvað má ekki o.s.frv.
Miðað við hvernig þjóðfélagið er orðið í dag, hraði og lífsgæðakapphlaup. Myndi maður halda að fólk vildi góða kennara og afslappaða. Þ.e. að fólk vildi allt það besta fyrir börnin sín.
Því er alveg merkilegt að heyra þetta sama fólk básúna um það hvaða frekjudósir kennarar eru.
Því segi ég tvennt - annars vegar Áfram kennarar!!
Og hitt - hvaða laun myndir þú vilja hafa að loknu háskólanámi, ef miðað er við starf sem þú þarft að leggja þig alla fram í og ert að sama skapi undir miklu álagi.
Athugasemdir
Já þetta er sorglegt og sýnir sig best í því að eftir 3 ára nám hef ég ekki efni á því að fara að kenna. En það þarf að gera meira heldur en bara að bæta launin, það þarf að stórbæta kennaranámið og ég held að kennarir öðlist ekki þá virðingu sem þeir eiga skilið fyrr en það verður gert. Þrátt fyrir að lenging upp í 5 ár sé vissulega skref í rétta átt þá er ekki verið að bæta gæði námsins í þeirri lengingu og það er miður.
erlaperla
erla (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 19:30
Datt hérna inn í kvöld! Verð nú að kvitta fyrir mig :) Ekki er þetta há upphæð sem þú sérð fram á.... Eftir 180 eininga nám sem nemur 6 árum í háskóla stefnir í að ég verði með um 240-250 í grunnlaun. Hrópa nú ekki húrra fyrir því, það munar ekki meiru þrátt fyrir helmingi lengra nám, vaktavinnu ofl. Ég segi bæti því við og segi áfram hjfr, ljósmæður og kennarar og auðvitað allir hinir sem eru með skítalaun! Nú fer að líða að útskrift og finnst mér botninn vera 350 en sæmandi 450 þús og hananú!
Frænkan í Áslandinu (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 23:07
Já maður veður nú bara hálf sár þegar maður heyrir í fólki í Reykjavík síðdegis. Þar hefur maður heyrt að það væri kominn tími á að kennarar fari að vinna fyrir laununum sínum og ALLT fríið sem þeir hafa og margt fleira í þessum dúr. Nú er ég starfandi kennari og ég væri alveg til í að bjóða þeim einstaklingum sem hafa þessa skoðun á starfinu manns að fyrlgjast með í einn eða fleiri daga. Það er spurnig hvort að þetta fólk sé sömu skoðunnar eftir það að dvelja með manni í vinnunni.
Á námsefnakynningu hjá mér í haust fóru foreldrar að tala um hvað það væri erfitt að fá börnin til þess að læra heima og þannig. Ég var nú fljót að svara og bauð bara þessum foreldrum að koma og taka eina kennslustund og láta 19 börn læra, ég hlustaði ekki á svona "væl" sitjandi heima með eitt barn!!! Enda hef ég ekki heyrt neitt um svona lagað síðan.
Dagný þú talar um 200 þúsundin sem er ekki fjarri lagi og miðað við vinnuna þá ætti maður að geta labbað út úr henni á hádegi, þá tel ég mig vera búna að vinna fyrir þeim launum sem áætluð eru á mann á dag. En þar sem maður er í þessu af hugsjón, áhuga og væntum þiggju þá er maður ekki svo mikið að velta sér upp úr þessum 200 þús. kalli.
En enn og aftur þá býð ég bara þessu fólki að koma til mín og vera með mér í einn eða fleiri daga, og verði þeim bara að góðu með það sem þeir hafa að segja eftir það!!!
Elín Ragnarsdóttir (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 16:53
Ég styð kennara. En...
Þetta snýst svolítið um markaðssetningu og ímynd líka. Þess vegna er þetta fjallganga núna. Ímynd kennara hefur verið svert. Bæði ímynd fólks og starfs. Þetta gerðist mjög harkalega í kring um síðasta verkfall en þá var nánast unnið markvert í þessu. Hugsanlega viljandi í "forvarnarskyni"?
Þá var farið að mála kennara sem latar frekjur. Fólk í fríi sem þyrfti lítið að gera og hugsaði bara mest um peninga. Ég er nokk klár á að þessu hafi verið lætt markvisst inn í þjóðarsálina. Og sennilega haldið við, að einhverju leiti, síðan.
Æi, bara skoðun. Kannski ekkert til í þessu.
J#
Jónas Björgvin Antonsson, 15.2.2007 kl. 11:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.