1.3.2007 | 14:17
Vinstri grænir
Loksins kemur andinn yfir mann!
Landsfundur Vinstri grænna var haldinn um sl. helgi. Ég hef yfirleitt haft mikið álit á honum Steingrími en nú keyrði eiginlega um þverbak.
Hvaða bull er það að leggja fram tillögur sem snúa að helmingaskipta reglu kynjanna í stjórnum fyrirtækja og öðrum stofnunum. Sem kona vil ég komast áfram á mínum eigin verðleikum - ekki því að vera kona.
Vissulega má reyna að skoða hlutina þannig að konur eigi auðveldara uppdráttar í stjórnum fyrirtækja, yfirmanna stöðum o.s.frv. , en það er eitthvað sem tekur tíma. Held að sigurinn fyrir konur sé meiri þegar þær gera hlutina sjálfar.
Ég ætla ekki einu sinni að reyna að skilja hugmyndir þeirra með lýðræðið og minnkun á því.
Vinstri grænir hafa lagt mikið upp úr umhverfismálum - en það mætti einn á hjóli, allir hinir á bíl. Og örugglega einn bíll á mann.
Ef þetta heitir að vera ekki samkvæmur sjálfum sér þá veit ég ekki hvað.
Þannig að hvað kýs maður í vor ef það verða ekki vinstri grænir, hægri snú og Sjálfstæðisflokkurinn!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.