Break up hjónabandsráðgjöf

Í fyrsta sinn í vetur ákvað húsmóðirin að slá "vinnunni" upp í kæruleysi og finna sér mynd til að horfa á. 

Fyrir valinu varð mynd sem mig langaði til að sjá en Hauki alls ekkiSmile. Break up með Vince Vaughn og Jennifer Aniston. 

Þessi mynd er snilld. Hún lýsir svo vel daglegum veruleika í samböndum. Án alls vafa hafa ansi margir farið í hjónabandsráðgjöf með akkúrat þessi vandamál. Hann skilur mig ekki, hendir fötunum sínum út um allt, er með fæturna upp á stofuborðinu og keypti ekki það sem ég bað hann um!

Ég veit hvað tíminn kostar hjá svona ráðgjöfum - myndin á Skjánum kostar 550 kr.

Horfið á hana og ræðið svo saman hvað þið viljið frá hinum aðilanum,kynnið fyrir honum óhreina tauskörfuna eða hvað ykkur langar til að gera.

Reyndar endar myndin á þann veg sem fólk sem fer til ráðgjafa vill kannski ekki - en góð dæmisaga engu að síður.

Ég skemmti mér konunglega - því ég hef sjálf staðið og tuðað um nákvæmlega sömu atriði. Haukur má þó eiga eitt sem hann Vince greyið gerði ekki - hann hlýðirGrin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

þetta er snilldarmynd :)

Eva Þorsteinsdóttir, 14.5.2007 kl. 15:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband