16.12.2007 | 12:19
Uppreisn æru.
Ég hef setið undir ámæli á heimili mínu fyrir að horfa á dr. Phil. Horfi stundum á laugardögum, það er minn hvíldartími. Í morgun rak mig svo í rogastans, ég var að lesa viðtal í Fréttablaðinu við Fjölni tattoo. Hann segist stundum horfa á kallinn.
Ég er því ekki ein - og þetta er ekki bara konuþáttur.
Ég hef því fengið uppreisn æru gegn betri helmingnum sem hefur oft gert grín að mér.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.