Tengdadóttir

Sonur minn fór í afmæli í dag. Sem er svo sem ekki frásögu færandi. Nema hvað að hann kom út með stjörnur í augum. Hann á kærustu! Og er svo ástfanginn að það hálfa væri nóg.

Um blessaða stelpuna hefur verið rætt síðan þá, þau ætla að leika saman eftir skóla á mánudag og í skólanum líka. Hún var víst pínu skotin í öðrum en hætti því svo bara þegar minn mætti á svæðið.

Hann ropaði því svo út úr sér að hann hefði átt kærustu í gamla bekknum. En sú var svo ákveðin að hann nennti ekki þessu veseni á henni (bein tilvitnun). Hún varð svo skotin í öðrum en er svo ekki skotin í neinum núna.

Hann klikkti svo út með því að segja að þau (kærastan) ætluðu að vera saman þangað til þau yrðu fullorðin. En það væri smá spurning með börnin, þau yrðu örugglega ættleiddLoL

Ég átti orðið heldur bágt með mig undir þessari ræðu. Og sagði undir það síðasta að það væri nú heldur snemmt að hugsa um börn. Hann leit á mig hálf hneykslaður......

En svo það sé á hreinu - hann er 8 ára.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband