18.7.2008 | 12:32
Manneskja með moppu og fötu óskast!
Nú er það svart.
Eins og þeir sem mig þekkja (og aðeins fleiri) vita, hef ég staðið í stórræðum hér innanhúss í tæpt ár.
Í gær fór svo að versna í því, þegar gólfið var brotið upp og nú er verið að pússa það sléttara fyrir flotun.
Það er ALLT í ryki... og þá meina ég ALLT!
Betri helmingurinn sagði mér á meðan gólfbrotinu stóð að þetta yrði ekki mjög mikið ryk. Svo ég vaknaði upp þegar allt var orðið grátt yfir að líta.
Gólfpússunin er að klárast og því vantar mig einhverjar manneskjur með mér með moppu og fötu, til að þrífa
Athugasemdir
Áiiiiiiiiiii!!!!
Veit hvað þú meinar. Acut ástand, svo einfalt er það. Rykið smýgur alls staðar og heljarinnar vinna að brasa í því. Vildi að ég gæti lagt þér lið kæra frænka, verð að láta duga að senda þér baráttukveðjur í þetta sinnið. Gangi ykkur vel og bestu kveðjur heim í bæ
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 18.7.2008 kl. 13:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.