Færsluflokkur: Bloggar

Kúkur í Kastljósinu!

Það var merkilegt að fylgjast með Kastljósinu í gærkvöldi. Þar "áttust" við Jónína Ben og Árni Valdimarsson (minnir mig) sem er meltingarsérfræðingur.

Að ræða um ristil,endaþarm og hægðir í korter í einum vinsælasta þætti landsins er alveg frábært. Eins og Simmi sagði að við ættum að þekkja vel innviði líkamans eftir þáttinnGrin

Jónína dásamaði mikið ristilhreinsun, stólpípu t.d. Hvað þetta hefði góð áhrif á líkamann o.s.frv. Á meðan læknirinn hristi hausinn yfir þessu. Nefndi m.a. að hann hefði unnið á heisluhælinu í Hveragerði og þar hefði þessu verið hætt fyrir 20-30 árum, því árangurinn var eitthvað óljós.  

Ef þið misstuð af þessu þá er þetta inni á ruv.is

Mér finnst merkilegt hvað Jónína rís alltaf upp aftur. Nú hefur farið frekar lítið fyrir henni undanfarin 2 ár og svo kemur hún fram með eitthvað nýtt sem Íslendingar verða að prófa, einhverjar heilsuferðir til Póllands. Þetta minnir á þegar hún kom fram í glansgalla með hárið í tagli og var að kynna líkamsrækt fyrir fólki! Ég nenni ekki einu sinni að eyða púðri í þetta Baugsmál sem er henni svo hugleikið. 

Alla veganna er það á hreinu að ég hreinsa ekki ristilinn í mér með stólpípu eða laxerandi, og fer ekki til Póllands - nema til að fara í búðir og skoða mig umWhistling


Sleggjudóttirin

Þeir sem mig þekkja vita hverra manna ég er. Þeir sem þekkja mig ekki komast að því núnaTounge. Ég er sem sagt dóttir Sleggjunnar víðfrægu. 

Sem barn var ég oft spurð út í þetta Sleggju viðurnefni. Og hefur það ekki minnkað!

Í dag datt ég inn á blogg eins Bolvíkings sem veltir fyrir sér málefnum Sleggjunnar. Það var þar ein setning sem snart mig - svo ég viðurkenni það. Hann sagði að sig grunaði að stríð sem pabbi hefur háð (í pólitíkinni sem sagt) hefðu verið erfið þeim sem nærri honum standa.

Þetta er í fyrsta sinn sem einhver nefnir þetta upphátt svo ég "heyri". Mér hefur einmitt fundist frekar að fólk haldi að af því að maður er fullorðinn  að þá skipti þetta mann engu máli. En þessi einstaklingur hitti vissulega naglann á höfuðið. Undanfarin ár hafa ekki alltaf verið auðveld, þó maður sé fullorðinn. Það sem sagt hefur verið um hann, hvort sem er í fréttum eða á netinu (í skjóli nafnleyndar), hefur oft verið erfitt að kyngja. 

Fólk hefur yfirleitt bara þagað og látið sem ekkert sé. Sem er oft sárt, því stundum þarf maður að fá klapp á bakið eða bara spyrja mann hvernig manni gangi að heyra það sem sagt er.

Takk BaldurGrin


Hádegisviðtalið

Ég horfði í gær á hádegisviðtalið á Stöð 2. Þar sat Margrét Sverrisdóttir fyrir svörum vegna yfirlýsingar um framboð sitt til varaformanns Frjálslynda flokksins. 

Hún var spurð hvað hún hefði fram að færa sem Magnús Þór hefði ekki. Hún nefndi sérstaklega að hún væri aðal hugmyndasmiður að auglýsingum Frjálslynda flokksins. Þær væru ódýrar og smekklegar! Er þetta það sem manneskjan hefur fram að færa, ég verð að viðurkenna að ég horfði á sjónvarpið og velti fyrir mér hvort hún væri að grínast. Á varaformaður flokks ekki að hafa meira til brunns að bera en að geta skapað ódýrar sjónvarpsauglýsingar??  

Annað sem hún sagði fékk mig til að glotta út í annað. Hún sagði þetta framboð sitt sáttahönd til að skapa frið í flokknum. Hvernig í ósköpunum fær hún það út að friður geti skapast þegar tveir aðilar sækjast eftir sama sætinu? Þá kemur bara sterkar í ljós hvaða armur er Adda Kitta Gauj og hvaða armur er hennar. Er það friður?

Svo klikkti hún út með því að það skemmdi ekki fyrir að hún væri kona. Því augljóslega er Magnús Þór það ekkiTounge

Mér hefur fundist þessi kona standa sig oft á tíðum vel í þessu arga þrasi stjórnmálanna, vera málefnaleg. En ég vissi ekki alveg hvað ég átti að halda í gær.  


Athyglisvert

Það er voðalega mikið í fréttum þessa dagana sem hefur vakið athygli mína. 

Eina fréttina hef ég átt bágt með að skilja. Ágúst Einarsson er nýr rektor á Bifröst. Hann bað um 4 ára frí við HÍ til að sinna þessari vinnu, hann fékk neitun. OG hann er hissa á því!  Ef forstöðumaður á  Símanum fengi ráðningu sem forstjóri Vodafone myndi honum detta í hug að biðja um launalaust leyfi. 


Byrgið

Það er ekki hægt að segja annað en að fréttaþættinum Kompási hafi tekist að hrista ærlega upp í starfsemi og málefnum Byrgisins.  Ég get alveg viðurkennt að ég setti mikið og stórt spurningamerki við þáttinn á sínum tíma því þar voru, að mínu mati, settar fram alvarlegar ásakanir á hendur nafngreindum manni. Æran var af honum tekin og ósköp fáar sannanir lagðar fram í þættinum. 

Ég þekkti persónulega mann sem tók líf sitt eftir mjög alvarlegar ásakanir á forsínu DV. En þar var hann nafngreindur og myndbirt af honum. Því tek ég alla svona fréttamennsku með mikilli varúð. OG fannst fyrst um sinn núna í þessu Byrgis máli sem einhverjar nornaveiðar væru á ferðinni.

Hins vegar virðist sem Kompás hafi eingöngu talað um toppinn á ísjakanum því það sem kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar er margt merkilegt. Þá er eingöngu verið að tala um fjármálin - allt annað sem þar hefur gengið á er eðlilega ekki innan ramma Ríkisendurskoðunar heldur Félagsmálaráðuneytisins. Sem skv. nýjustu fréttum hefur óskað eftir lögreglurannsókn.

Ég las þessa skýrslu og sá margt merkilegt. Það fyrsta sem ég rak augun í var að Byrgið undirritaði ekki yfirlýsingu sem Félagsmálaráðherra þáverandi undirritaði í október árið 2003. En í yfirlýsingunni var sagt að Byrgið fengi greitt, eftir ákveðnum skilyrðum, fyrir skjól og aðstoð 55 heimilismanna. Byrgið gaf þá skýringu að þeir töldu ríkisframlagið og stærð húsnæðis ekki bjóða upp á svo marga vistmenn. Samt fékk Byrgið borgað í samræmi við yfirlýsinguna. Svo virðist sem enginn hafi haft það verk fyrir höndum að athuga hvort fjöldi heimilismanna væri í samræmi við lýsinguna. Hefði þá ekki verið við hæfi að endurskoða yfirlýsinguna?

Annað sem mér fannst eiginlega alveg óborganlegt. Var að af 3.5 milljónum króna fóru 15% til kaupa veitinga á KFC og 4% til kaupa á öðrum veitingastöðum en KFC.  Var það þannig að farið var ein ferð í mánuði með alla heimilismenn á KFC? Hópferð Byrgisins á skyndibitastaði... Veit að þetta er sett fram í kaldhæðni, en í raun er það réttlætanlegt þegar um er að ræða á fjórða hundrað þúsund króna í ruslfæði. 

 Tóbak var keypt af Byrginu fyrir vistmenn og fengu þeir það oftast gegn greiðslu. En Byrgismenn sögðu að stór hluti heimilismanna væru stórreykingamenn.....hmmmm segi ég nú bara. Spurning um að fá einhvern til að koma og halda námskeið þar sem heimilismenn hættu að reykja. 

En svo er eitt annað sem mér finnst að ætti að vera á hreinu. Eiga þeir sem þessu komu á koppinn, t.d. þáverandi félagsmálaráðherra ekki að svara fyrir það hvernig Byrgið hefur fengið að leika sér með peninga skattborgaranna.... eða á að breiða yfir þessa "yfirsjón" því Byrgið losaði bæði ríki og sveitarfélög við óæskilega þegna? 

 Ég hef nú bara nefnt þrennt sem hefur komið mér spánskt fyrir sjónir. Það var ýmislegt fleira sem mér fannst athyglisvert en læt það liggja á milli hluta því ég hef ekki mikla þekkingu á bókhaldi.....

Því til sönnunar aðstoðaði ég móður mína á hennar skrifstofu sl. vor og vissi þá varla muninn á debet og kredit. 


Góður dagur

Þetta var góður dagur í dag, rólegur og fínn.

Ég fór í langan göngutúr með góðum vinkonum úr meðgöngusundinu. Í 2 klukkutíma ösluðum við snjó hér í Reykjadalnum, enduðum svo að okkar hætti í sjoppuWhistling.... alger óþarfi að brenna of miklu!

Eins og þeir vita sem þekkja mig þá eignaðist ég mitt þriðja barn í október síðastliðnum. Á meðgöngunni fór ég að finna fyrir grindarverkjum og ákvað að fara í meðgöngusund. Fyrst um sinn í sundinu var þetta frekar einmanalegt, ég var snögg ofan í og upp úr aftur!  Síðar komst ég að því að aðal félagslíf óléttanna var að fara í heita pottinn. Þar kynntist ég nokkrum stelpum sem áttu að eiga um svipað leyti og ég.  Þegar upp var staðið urðum við 8 sem héldum hópinn. Þessi tími á þriðjudags og fimmtudagskvöldum varð okkar tími. Við löbbuðum út frá börnum og buru, þreyttum eiginmönnum, uppvaski og tiltekt og settumst í heita pottinn í Reykjalundar sundlauginni. Það er ekki hægt að segja annað að það hafi alltaf verið gaman hjá okkur. Okkur þótti öllum gaman að tala og hlógum mikið. Það má segja að fyrirferðin hafi verið mikilGrin.  Ekki veit ég hvort öllum kennurunum hafi þótt við eins skemmtilegar, því eina leiðin til að fá okkur til að þegja var að láta okkur gera æfingar sem kröfðust einbeitningar eða þar sem hendur og fætur áttu að hreyfast á sama tímaTounge.

Þegar að fæðingum dró fórum við að hittast utan sundsins. Fyrst var það á 2 vikna fresti en nú þegar liðið hefur á haustið hefur það aukist í einu sinni í viku. Það er óhætt að segja að stelpurnar hafa haldið í manni lífinu og geðheilsunni þessa mánuði. Því þótt það sé yndislegt að eignast barn er það líka rosalega erfitt. Bæði fyrir konuna, manninn og heimilið.  

Við höfum stappað stálinu hver í aðra og þegar einhver hefur verið latur eða niðri þá hafa engin grið verið gefin og ekki hætt fyrr en manneskjan er mætt í hópinn aftur. 

Þegar maður dettur inn í svona hóp sér maður hvað svona félagsskapur skiptir miklu máli fyrir nýbakaðar mæður. Þarna er einhver sem er að ganga í gegnum það sama og þú, svo það er alltaf einhver sem skilur þig, þú getur fengið ráð og tuðað undan "erfiðum" mökum... það eru allir tilbúnir að hlusta.

Svona hópar ættu að vera skylda - því ég tel ansi miklar líkur á því að þá myndi lækka tíðni fæðingarþunglyndis. 

A.m.k. tel ég að stelpurnar hafi bjargað ansi miklu hjá mér og veit að þær eru líka sama sinnis gagnvart okkur hinum. 


Skrjáfpokar

Ég er móðir sem vill ekki að barnið sitt borði nammi svona dagsdaglega. Fínt  á laugardögum. Hins vegar er ég ein af þeim sem á alltaf eitthvað súkkulaði í nammiskápnum. Veit að ég er mjög fylgin mér! Það sama gengur ekki yfir mig og börnin. 

Í gærkvöldi ákvað ég að fá mér smá nammi þegar börnin voru komin í rúmið. Ég laumaðist hægt og rólega um eldhúsið og opnaði nammiskápinn. Tók fram nammipokann en skrjáfið í honum hefði getað vakið draug.  Því skipti ég snarlega um poka, sá skrjáfandi fór í ruslið á meðan samlokupoki var notaður í staðinn. 

Þá fór ég að velta fyrir mér hvaða snillingur fann upp þessa poka. Þetta skrjáf er óþolandi. Við foreldrarnir getum ekki laumast í skápinn án þess að börnin fatti, í leikhúsi eða í bíó heyrist skrjáfið oft á sýningum.

Mér finnst að nammiframleiðendur ættu að framleiða tvenns konar umbúðir, foreldravænar (fyrir okkur sem "snökkum" í laumi) og hina sem gera það fyrir opnum tjöldumWink


Rope yoga

Eftir að maður eignast börn má segja að líkaminn sé ekki alveg að gera sig. Maður þarf að byggja upp og styrkja. Ekki veitir af.
Því datt mér í hug að fara í rope yoga, en námskeið í svoleiðis sá ég auglýst hér í "sveitinni". Í gær var svo fyrsti tíminn..
 
Hann byrjaði hálf furðulega, þegar ég geysist inn úr dyrunum - sem skella hátt á eftir mér - dett ég inn í sal fullum af kellingum sem voru í slökunarjóga!
Ég SNAR stoppaði í dyrunum og laumaðist til að fá mér sæti. Eftir það kemur kennarinn og EIN kona. Við vorum sem sagt tvær í tímanum! 
Kennarinn dregur fram bekkina og þessi blessuðu bönd sem allt snýst um.  Svo segir hann okkur að leggjast og byrja. Ekki fékk ég miklar leiðbeiningar svo

ég bara lagðist á bakið og beið þess sem verða vildiErrm

Böndin voru þrædd á ökkla og svo handföng fyrir hendurnar.

Og svo byrjuðum við. Þetta byrjaði voða vel. Draga böndin með höndunum og fæturnir fóru upp og niður, upp og niður. Svo kom að því að draga fæturna í jógastellingu... o.s.frv. Svo kom að því að leggjast á hliðarnar, þá áttu fæturnir að koma á ákveðinn hátt í gegnum böndin... hmmmmm það tók mig nokkrar tilraunir að fatta það! Svo átti að taka handföngin líka á ákveðinn hátt í þríhyrning í gegn einhvern veginn... Ég var orðin ægilega ljóshærð! Kennaranum fannst að einhver
þyrfti að fylla ljósku flokkinn því ljóskum færi fækkandi!!

Æfingarnar voru spes (enda hef ég aldrei gert þetta áður) en ekki erfiðar. Ég sá best í hvernig formi ég var þegar ein æfingin sneri að því að taka fæturna upp og lyfta svo rassinum, ég gat alveg tekið fæturna upp en að lyfta rassinum -
gleymið því. 


Öndun skiptir miklu máli (enda er þetta jóga) en ég kunni hana ekki betur en svo að þegar tíminn var búinn var ég bæði með hálfgerðan svima og óglatt. Ætla því að mæta aðeins fyrr á morgun og fá leiðbeiningar svo ég andist hreinlega ekki í tímanum!


Annars finn ég alveg fyrir því núna að ég var að gera eitthvað nýtt, er svona lurkum lamin. En engar harðsperrur. Hef ekki trú á neinu öðru en að þær komi þegar fram líða stundir!
kv. húsmóðirin 

Fyrsta bloggfærsla

Jæja ætla að prófa að blogga aftur. Fannst þetta blogger dót ekki að gera sig fyrir mig. Ég þarf svona einfalt og helst á íslenskuWink

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband