Úti á landi.

Ég er utan að landi eins og margir vita, frá hinni frægu Bolungarvík.

Á Vestfjörðum er fréttavefurinn bb.is sem sér okkur brottfluttu fyrir fréttum af svæðinu.

Á rúnti mínum á netinu áðan verð ég að viðurkenna að hakan seig örlítið.

Það var frétt þess efnis að byrjað er að birta myndir, á vef sjúkrahússins á staðnum, af  nýburum og segja frá foreldrum þess og hæð og þyngd.  Ljósmóðirin sagði að fólk væri forvitið um þessa hluti. 

HALLÓ! Á virkilega að fara að setja á netið ákveðinn hluta af því sem gerist á sjúkrahúsum til að "fræða lýðinn".

Ég veit fullkomlega hvernig hlutirnir ganga fyrir sig úti á landi. Fólk er forvitið um nágrannann og vill allt vita. Nýjasta dæmið eru sögur sem gengið hafa í heimabænum, þess efnis að ákveðin hjón væru skilin - þar sem hún hefur verið í prófum í Reykjavík.

Er þetta ekki svolítið langt gengið. 

Bjarni Ben gæti tekið sér þetta til fyrirmyndar og aflétt þagnarskyldunni af Jónínu málinuSmile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband