Þriðji dagurinn

Nú er þriðji dagurinn að kvöldi og kominn og nýbúið að reka síðustu "rolluna" í rúmið.

Dagurinn byrjaði snemma. Minnsta vekjaraklukkan ákvað að þjófstarta kl 6.40, takk fyrir.  Fyrir húsmóðurina er það heldur snemmt.

Það gekk stórslysalaust að koma grísunum á fætur. Það var reyndar stress í mömmunni því hún ætlaði með Arnar í bæinn, en það datt upp fyrir þegar hún mundi að í leikskólanum var sveitaferð. Bæjarferðin bíður því til morguns.

Dagurinn hefur gengið nokkuð vel fyrir sig. Að vanda á mánudögum var Mjallhvítar hittingur.

Seinnipartinn fórum við mæðginin í göngutúr með nýju kerruna. Arnar tilkynnti mér í bílskúrnum " ekki heim takk!". Þetta endurtók hann nokkrum sinnum og æstist þeim mun meira þegar á leið heim var heitið.

Áðan fékk ég mynd senda á símann minn. Sú mynd hefði getað farið með góða skapið út á hafsauga. En í staðinn ætla ég að fá mér ís makanum til samlætis og horfa á kvöldsólina. Hún hlýtur að ná sólinni í San Fransisco svona 30%....

 

 

 

Ég viðurkenni að ég er frekar þreytt eftir daginn. En ég skil ekki eitt - hvernig skipuleggja einstæðar mæður sig, þær þurfa að hugsa um börnin, svo þarf að hugsa um heimilið. Það á ég algerlega eftirSmile . Kannski fæ ég stelpurnar til að taka til á miðvikudaginnFootinMouth


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband